4. júní 2008

Kvennahlaupið í Garðabæ

Léttir drykkir og 15% aflsáttur af öllum vörum í versluninni í tilefni Kvennahlaupsins laugardaginn 7. júní.

Munið - þið getið sótt kvennahlaupsboli í versluninni.

Laugardagsstemning á torginu eftir hlaupið: Egill Ólafsson og Tríó Björns Thoroddsen, hoppukastali o. fl. í tilefni dagsins!

Nánari upplýsingar um hlaupið hér: Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ


9. september 2007

NAJA LAUF: Aldrei flottari en nú

Komið í Garðabæinn og skoðið haustúrvalið frá Naju Lauf. Það er ekki að ástæðulausu að mikið hefur verið spurt um haustlínuna frá Naju upp á síðkastið...

Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu...

Þær hjá NAJA LAUF í Danmörku hafa sett upp hjá sér nýjan vef sem er flottur eins og við var að búast á þeim bæ. KÍKIÐ á hann hér . (Flash vefur - tekur smá tíma að hlaðast).

20. ágúst 2007

1. maí 2007

Ragnheiður í hásætinu


Ragnheiður var í stóru viðtali í "Hásætinu" í sunnudagsþætti Valdísar Gunnarsdóttur á Bylgjunni 29. apríl. Þar ræddu þær um fjölskylduna, lífið, tískuna og verslunina á Garðatorgi í góðu spjalli.

Hægt er að hlusta á þáttinn á vef Bylgjunnar með því að smella hér.

Í þættinum var líka sagt frá vortilboði Ilse Jacobsen um mánaðamótin, Valdísatilboðinu okkar. Það verður 20 prósenta afsláttur af öllu í versluninni mánudaginn 30. apríl og miðvikudaginn 2. maí. Lokað er á þriðjudeginum 1. maí.