Svalar mokkasínur í nokkrum útfærslum og fjórum litum: gull, silfur, svörtu og hvítu.
17. mars 2006
Nú vorar í búðinni
11. mars 2006
Nýir skór !
Um Ilse Jacobsen * Hornbæk
ILSE JACOBSEN • Hornbæk var opnuð í Garðabæ í september 2005 og fékk strax frábærar viðtökur. Önnur ILSE JACOBSEN verslun var opnuð haustið 2013 á Laugavegi 33.
Ilse Jacobsen er danskur hönnuður sem hannar og framleiðir skó, fatnað og fylgihluti fyrir rúman tug verslana undir eigin nafni á Norðurlöndunum, auk þess sem vörurnar eru seldar í yfir 2000 öðrum verslunum í 23 löndum. ILSE JACOBSEN • Hornbæk keðjan hefur verið í örum vexti undanfarin ár og framleiðslulínan farið breikkandi. Þetta á jafnt við um skó, fatnað og hina vinsælu regn- og útivistarlínu RUB & RAIN.
Það sem Ilse segir sjálf um skólínu merkisins á jafn við um alla framleiðslu þess, hún höfðar til allra aldurshópa. "Mér finnst mjög mikilvægt að geta verið með smart skó fyrir allan aldur," segir Ilse. "Allir eiga að geta keypt skó hjá okkur, 15 ára stúlkur jafnt sem 45 ára konur eða 65 ára. Það er ekki markmiðið hjá okkur að vera bara með flotta skó fyrir einn aldurshóp. Allir eiga að geta fundið skó við sitt hæfi hvort sem það eru einfaldir göstuskór, samkvæmisskór eða stígvél," segir hún.
ILSE JACOBSEN • Hornbæk verslanirnar á Garðatorgi og Laugavegi eru líka með fallega boli og prjónavöru frá Ilse, en auk þess fatnað frá öðrum hönnunarhúsum sem hafa notið mikillar hylli undanfarin ár s.s. Baum und Pferdgarten.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)