20. ágúst 2008

Við flytjum!


Verslunin ILSE JACOBSEN * Hornbæk flytur sig um set af Garðatorgi og opnar í nýjum og rúmgóðum húsakynnum í nýju verslunarmiðstöðinni við Litlatún í Garðabæ, á horni Vífilstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar, föstudaginn 22. ágúst n.k.

Verslunin hlaut sérlega hlýjar og góðar viðtökur hjá konum á öllum aldri þegar hún opnaði fyrir þremur árum og hefur notið sívaxandi vinsælda síðan, bæði fyrir vandað úrval af skóm, fatnaði og fylgihlutum frá ILSE JACOBSEN * Hornbæk og fyrir ríka áherslu á persónulega þjónustu.

ILSE JACOBSEN * Hornbæk skó- og fatamerkið hefur vaxið hröðum skrefum síðustu ár. Verslanir undir merkjum ILSE JACOBSEN * Hornbæk eru nú orðnar um 20 talsins í Skandinavíu og Evrópu, auk þess sem vörur fyrirtækisins eru seldar til hundruða annarra verslana um allan heim. Ilse Jacobsen er hvað þekktust fyrir reimuðu gúmmístígvélin og fínlega kvenskó, en nýverið hefur fatalína merkisins einnig verið víkkuð út til muna.

Verslunarstjóri ILSE JACOBSEN * Hornbæk í Litlatúni: Ásta Ólafsdóttir