Nýlega voru nýjar höfuðstöðvar Ilse Jacobsen opnaðar með pompi og pragt og tískusýningu í sveitasælunni á Norður-Jótlandi.
Nýju höfuðstöðvarnar eru í næsta nágrenni strandbæjarins Hornbæk og þar sameinast allar einingar fyrirtækisins undir einu þaki á sérlega vel útfærðan hátt. Hönnun, framleiðsludeild, sýningarsalur og vöruhús eru tvinnuð saman í haganlega heild, sem ber dönsku verksviti fagurt vitni.
Slegið var upp heljarinnar veislu, þar sem boðið var upp á úrvals mat og drykk að dönskum hætti og síðan var slegið upp balli, sem stóð fram á nótt og ómaði um nærliggjandi sveitir.
Á tískusýningunni, sem fjölskylduvinur, danski fjölmiðlamaðurinn Mads Vangsö, kynnti ásamt Ilse, gaf í fyrsta skipti að líta breikkaða fatalínu sem væntanleg er frá Ilse.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli